Atvinnumála- og kynningarráð - 50 (15.1.2020) - Fundargerðir AFE 2019
Málsnúmer201904003
MálsaðiliAtvinnuþróunarfélag Eyjafj bs
Skráð afirish
Stofnað dags15.01.2020
Niðurstaða
Athugasemd
TextiLagt fram til kynningar. Atvinnumála- og kynningarráð tekur undir bókun stjórnar AFE í fyrsta lið fundargerðarinnar vegna óveðursins sem gekk yfir í desember: Stjórn AFE lítur atburði síðustu sólarhringa grafalvarlegum augum og harmar að opinberir innviðir samfélagsins hafi brugðist í því veðuráhlaupi sem nú gekk yfir. Þessi staða ætti ekki að koma á óvart, í yfir áratug hefur verið bent á nauðsyn þess að styrkja flutningskerfi raforku. Öryggi íbúa, hvar svo sem þeir búa, þarf að vera forgangsmál þjóðarinnar. Ótryggt raforkukerfi og innviðir skapa aðstæður sem eru algjörlega óásættanlegar í nútíma samfélagi. Einnig tekur atvinnumála- og kynningarráð undir bókun sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps frá 6. janúar sl.: Sveitarstjórn skorar á stjórnvöld að flytja höfuðstöðvar Rarik inn á starfssvæði Rarik, t.d. á Norðurland, enda er það í fullu samræmi við stefnu stjórnvalda að flytja opinber störf út á land.